14.3.2010 | 13:53
haha
"Meirihluti borgarstjórnar Árósa vilt breyta starfsetningunni á nafni borgarinnar."
Finna má örlitla kaldhæðni í því að stafsetja orðið stafsetning vitlaust í fréttinni. 
|
Vilja bolluaið burt úr borgarnafninu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.2.2010 | 23:50
Hvenær fær hann almennilega viðurkenningu meðal íslenskra fjölmiðla?
Þessi frétt birtist ekki meðal íþróttafrétta heldur undir "Veröld/Fólk."
Bardagaíþróttir af öllum gerðum verða sífellt vinsælli, bæði meðal Íslendinga og í heiminum öllum. Gunnar er afreksmaður á heimsvísu og mjög góð fyrirmynd. Það er skömm að því að hann skuli ekki fá sína viðurkenningu á Íslandi (t.d. að komast að í vali á íþróttamanni ársins o.s.fr.).
Umræðan fer þó vaxandi, eins og sést best á því að blaðamaður mbl eyddi heilum 11 línum í fréttina, sem er framför 
Ég vil óska Gunnari til hamingju með sigurinn.
|
Gunnar yfirbugaði þann breska |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2009 | 10:00
Og hver ætli launakjör starfsmanna á sérbýlum séu?
Sjálf hef ég aldrei unnið slíka vinnu en ég ætla að gera ráð fyrir að launakjörin á þessum stöðum séu ekki upp á marga fiska. Er það réttlátt?
Svo virðist sem að kjör þeirra sem að hugsa um annað fólk (þ.e. hjúkrun, liðveisla, leikskólar o.s.fr.) séu með þeim verri í landinu, þó mætti líta svo á að þessi störf séu með þeim mikilvægari.
Öllum er velkomið að leiðrétta mig ef ástæða þykir....
|
Slasaðist á hlaupum undan vistmanni á sambýli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.5.2009 | 16:03
Þá er vorið komið....
|
|
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2009 | 09:36
Er þetta næsti íþróttamaður Íslands?
Fáir áttu von á að Gunnar myndi vinna fyrstu glímuna sína á þessu móti þar sem hann var dreginn á móti Clark Gracie.
Clark Gracie er barnabarn Carlos Gracie og rekur (að ég held) tvo Jiu-Jitsu skóla.
Helio Gracie sem er upphafsmaður íþróttarinnar (Brasilískt Jiu-Jitsu) og var bróðir Carlos Gracie.
Gunnar hefur sýnt fram á mikla hæfileika í þessari íþrótt og ég held að Íslendingar geti verið stoltir af árangri hans á mótinu
Til hamingju með árangurinn Gunnar
|
Vann gull á jiu-jitsu móti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.3.2009 | 09:49
Kaldhæðni segi ég
Kaldhæðnin er yfirþyrmandi
Þegar hugsað er til þess að bankakerfið á Íslandi byggði að einhverju leiti á bandarískri mynd stórfyrirtækja. Þessi útrás og peningagræðgi íslenskra bankamanna er hugmynd fædd í Bandaríkjunum.
Misskipting auðsins er varla meiri hjá neinni vestrænni þjóð en í BNA. Þar býr stór hluti fólks við fátækt á sama tíma og gríðarleg ofurlaun stjórnenda viðurkennast. Ofurlaunin fæddust og voru uppalin í BNA.
|
Obama: Ekki sömu leið og Ísland |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 25.3.2009 kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2008 | 13:26
Ekki nýtt viðhorf samkvæmt skýrslu frá 2006.
Ég var á fyrirlestri í HÍ um samskipti á vinnumarkaði hjá Katrínu Pálsdóttur fyrir nokkru og var umfjöllunarefnið eftirfarandi skýrsla.
Í maí 2006 vann Sigrún Davíðsdóttir hjá Útflutningsráði og hópur frá IMG Gallup að skýrslu um íslensk fyrirtæki á Norðurlöndunum. Skýrsluna má finna á pdf hér.
Niðurstaðan var sú að litið var niður á Íslendinga í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Af hverju?
„Íslensku fyrirtækin hegða sér eins og kvenmaður á fertugsaldri sem hefur verið sleppt lausri á verslunargötu með gullkort. Fyrirtækin virðast kaupa hvað sem er, á hvaða verði sem er" (danskur blaðamaður).
Nýríka yfirbragðið og að virðast ekki kunna fótum sínum forráð virkaði mjög neikvætt úti. Víkingsímyndin tröllreið allri umfjöllun erlendis og sú sýn að Íslendingar blikni ekki við að leggja undir sig fólk og fyrirtæki. Ráðandi karkyns-ásýnd í þessum jafnréttisþenkjandi löndum vakti ekki endilega jákvæða athygli.
Hvaðan fáið þið peningana? var tíð spurning erlendis en engin svör var að fá. Íslenskir forstjórar voru góðir í að halda mikilfenglegar veislur en opnuðu ekki á sér kjaftinn þegar þörf var á því.
Þetta er sú ásýnd sem „íslenska efnahagsundrið" hafði í Norðurlöndunum og við sem þjóð þurfum að borga fyrir. Það er greinilega eitt að kaupa fyrirtæki en það er annað að reka það. Það hefur greinilega ekki dugað að halda flottar opnunarveislur, ef þörfinni á jákvæðri umfjöllun um fyrirtækið í kjölfarið er ekki fylgt eftir.
Þetta er það orðspor sem að útrásarvíkingarnir hafa fest við þjóðina, löngu fyrir efnahagsfallið. Hvort sem þetta viðhorf byggist á öfundsýki, fáfræði eða öðru, hefði þurft að taka á þessu strax.
"Það hefði örugglega verið snjallara fyrir íslensku fyrirtækin að hafa betri talsmenn. Þeir hafa ekki alltaf komið sérlega vel fyrir í fjölmiðum hér" (sænskur blaðamaður).
Ég vil endilega benda á bloggfærslu hjá Dofra Hermannssyni um þessa frétt.
|
Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2008 | 11:23
Lausnin er ...
Hvaða kostir eru aðrir í stöðunni en núverandi ríkisstjórn? Hugsunum er kastað fram og til baka en engin heilsteypt hugmynd virðist komast áleiðis í látunum. Allir segjast vera að tala fyrir hönd þjóðarinnar og allir hafa betri hugmyndir en hinir.
Margir mótmælendur eru stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar og vilja sjá sinn flokk ná forskoti í næstu kosningum, aðrir mótmæla sjálfstæðisflokknum en nefna ekki aðra flokka á nafn, aðrir virðast bara vera reiðir og mæta á Austurvöll til að sýna þá reiði o.s.fr. Hver og einn mætir og mótmælir er virðist á sínum forsendum.
Það sem vantar er sameiginlega röddin sem býður aðra möguleika fram í stöðunni ... núna eru margar raddir sem keppast við að tala hver ofan í aðra.
Ég vil endilega benda á hugmyndabankann hjá Kjartani Pétri en það er eitthvað sem gæti komið einhverju af stað. Svona listi þarf að komast í hendur ráðamanna (hvort sem það er Geir, Ingibjörg, Steingrímur eða einhver annar)og koma heilabúum af stað í að finna varanlega og góða lausn til að bæta ástandið á Íslandi.
|
Útifundur á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.11.2008 | 15:28
Spurningin um frelsi eða öryggi
Hversu hátt verðleggur fólk öryggi sitt?
Hversu hátt verðleggur fólk frelsi sitt?
Við hlúum að öðru á kostnað hins.
Bandaríkjamenn veltu þessum spurningum mikið fyrir sér eftir 11. sept. 2001. Hversu langt má ganga í að brjóta á einstaklingsréttindum í þeim tilgangi að vernda fjöldann?
Í þessu tilfelli hjá lögreglunni á Selfossi hefði ég persónulega viljað sjá þá ná í skottið á ökuníðingnum. Ég verðlegg öryggi þeirra sem eru ferð þarna um meira en friðhelgi upplýsinga um gsm notkun á svæðinu á ákv. tímapunkti.
|
Fá ekki upplýsingar um GSM-síma |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
29.10.2008 | 09:33
Færeyskt bróðerni
Bestu þakkir til Færeyskra stjórnvalda fyrir sitt framlag til okkar. Þeir hafa sýnt okkur vináttu sem aðrir virðast tvístígandi við að auglýsa. Spurning um hvort Færeyjar séu í raun stórasta þjóð í heimi, eða kannski ein sú hugrakkasta.
Þó þessi upphæð sé bara dropi í haf þeirra fjárhæða sem við þurfum að reiða fram á næstunni er örugglega hægt að nota þessar dönsku krónur í gott málefni.
Helst langar mig að spyrja hvort þessum peningum sé ekki best varið í að bjarga námsmönnum og starfsmönnum erlendis sem ekki komast í íslenskt fjármagn sitt til að halda húsnæði sínu? Leiguna þarf að borga eftir 2 daga!!
|
Mikill drengskapur Færeyinga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


eyja
sigaxel
lauola
nanna
professor
photo
eyglohardar
sigrunb
nonniblogg
doddiheimur
omarragnarsson
stebbifr
fannarh
vefritid
gattin
brandarar
dofri
gudbjorng
gunnarbragi
himmalingur